Skátafélagið á, rekur og viðheldur þremur skálum í nágrenni Akureyrar. Fálkafell sem gist geta 40 manns og var reist 1932. Gamli sem gist geta 13 manns og var reistur 1979. Síðast en ekki síst er það svo Valhöll, nýjasti skáli félagsins, reistur 1996.
Hamrar, útilífs- og umhverfismiðstöð skáta er heimahagi Klakks, þar höldum við flestalla skátafundi okkar. Hamrar eru staðsettir í suður jaðri Akureyrarbæjar, rétt norðan við útivistarsvæði Akureyringa, Kjarnaskóg. Á Hömrum höfum við aðgang að góðri aðstöðu til útistarfs (sem er í stöðugri framþróun), talsvert vantar þó upp á inniaðstöðuna enn sem komið er en útlit er fyrir úrbætur. |
|