Skátafélagið Klakkur leitar að hressum einstakling til þess að leiða drekaskátasveit félagsins frá september – júní. Drekaskátar eru hressir skátar á aldrinum 7 – 9 ára, hlutverk umsjónaraðila er að undirbúa og hafa umsjón með drekaskátafundi einu sinni í viku auk þess að taka þátt í útilegum með sveitinni. Drekaskátafundur er 60 mínútur og reiknað er með 90 mínútum í undirbúning og frágang. Flottur hópur aðstoðarforingja styðja við starfið auk starfsmanns félagsins.
Við leitum að hressum og skipulögðum aðila sem er til í skemmtilega vinnu sem hentar vel með námi eða öðru starfi. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf sem felur m.a. í sér útivist, samskipti við hressa skáta og almenna gleði!
Hæfniskröfur:
- Hreint sakavottorð
- Starfsmaður vinnur eftir aðferðafræði, markmiðum og þeirri stefnu sem skátahreyfingin hefur sett sér í skátastarfi með börnum og ungmennum á Íslandi.
- Er hæfur til starfsins samkvæmt 10. gr. æskulýðslaga
- Æskilegt er að starfsmaður sé með framhaldsskólamenntun og/eða háskólamenntun
- Reynslu af því að vinna með börnum og unglingum
- Hafi góða samskipta- og skipulagshæfileika
- Hafi frumkvæði og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum
Helstu verkefni
- Umsjón með starfi drekaskátasveitar 7 – 9 ára
- Ein skálaferð á hvorri önn (sólarhringsferð)
- Ein útilega á hvorri önn (sólahringsferð)
Upplýsingar um kaup og kjör veitir félagsforingi Klakks felagsforingi@klakkur.is
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið felagsforingi@klakkur.is
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.


