Kæru skátar og forráðamenn,
Aðalfundur Skátafélagsins Klakks verður haldinn Mánudaginn 22. febrúar kl. 20:00 í Þórunnarstræti 99. Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf; skýrsla stjórnar og ársreikningar verða lagðir fram, kosning stjórnar og önnur mál og almennar umræður.
Rétt til fundarsetu hafa:
Með atkvæðisrétt: allir fullgildir félagar 15 ára og eldri, og auk þess forráðamenn fullgildra félaga sem eru 14 ára eða yngri. Hver forráðamaður fer þó aðeins með eitt atkvæði.
Með málfrelsi og tillögurétt: forráðamenn skáta í félaginu, styrktaraðilar og þeir er stjórn býður sérstaklega á fundinn, eða fundurinn ákveður.
ATH. Vegna samkomutakmarkana verða fundargestir fæddir 2005 og fyrr að skrá sig hér: https://skatar.felog.is/ Eingöngu eru 20 skráningar í boði. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á netinu.
Á fundinum verður ekki boðið upp á veitingar og grímuskylda er í gildi.
Með kærri kveðju, Stjórn Skátafélagsins Klakks