Skátafélagið Klakkur
  • Heim
  • Skátastarfið
    • Lög Skátafélagsins
  • Skátasveitir
  • Aðstaða
  • Fréttir
  • Skráning
  • Staðsetning
29th June 2025

Starfsmaður Klakks – fullt starf

Starfsmaður Klakks – fullt starf
29th June 2025

Skátafélagið Klakkur leitar að umsjónaraðila skátastarfs. Um er að ræða fullt starf til lok ársins 2026 með möguleika á framlengingu. Við leitum að hressum og skipulögðum starfskraft sem er til í sveigjanlegan vinnutíma, fjölbreytt verkefni og gefandi starf sem felur m.a. í sér útivist, samskipti við hressa skáta og almenna gleði!

Hæfniskröfur:

  • Hreint sakavottorð
  • Starfsmaður vinnur eftir aðferðafræði, markmiðum og þeirri stefnu sem skátahreyfingin hefur sett sér í skátastarfi með börnum og ungmennum á Íslandi.
  • Er hæfur til starfsins samkvæmt 10. gr. æskulýðslaga
  • Æskilegt er að starfsmaður sé með framhaldsskólamenntun og/eða háskólamenntun
  • Reynslu af því að vinna með börnum og unglingum
  • Hafi góða samskipta- og skipulagshæfileika
  • Hafi frumkvæði og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum

Helstu verkefni

  • Umsjón með starfi yngri sveita 7 – 13 ára
  • Samskipti við foreldra
  • Rekstur skátaheimilis
  • Umsjón með fjáröflunum og viðburðum

Upplýsingar um kaup og kjör veitir félagsforingi Klakks felagsforingi@klakkur.is
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið felagsforingi@klakkur.is

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 14. júlí.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf um mánaðarmótin ágúst-september.

Previous articleNý stjórn tekin viðNext article Leiðalýsing 2025

Skátafélagið Klakkur

Nýlegar fréttir

Félagsútilega og fleiri fréttir14th June 2026
Skátaþing á Akureyri14th April 2026
Fjölskylduskátar14th April 2026
Átta skátar úr Klakki tóku við forsetamerkinu2nd November 2025
Leiðalýsing 202529th October 2025
Starfsmaður Klakks – fullt starf29th June 2025
Ný stjórn tekin við6th March 2025
Leiðalýsing25th October 2023
Starfsmaður skátafélagsins4th September 2023
Nýtt skátaár er að hefjast!20th August 2023

Skátafélagið Klakkur

Skátafélagið Klakkur var stofnað árið 1987 og varð til við sameiningu skáta- og kvenskátafélaganna á Akureyri. Skátastarf hafði fram að því verið kynjaskipt, en upphaf skátastarfs á Akureyri má rekja til ársins 1917. Fyrsta kvenskátasveitin var stofnuð 1923.

Hafðu samband

Skátafélagið Klakkur
Þórunnarstræti 99
600 Akureyri
899-1066
klakkur@klakkur.is

Nýlegar fréttir

Félagsútilega og fleiri fréttir14th June 2026
Skátaþing á Akureyri14th April 2026
Fjölskylduskátar14th April 2026
© Skátafélagið Klakkur