Skátaþing var haldið á Akureyri dagana 10-12 apríl í Brekkuskóla og var Skátafélagið Klakkur gestgjafi. Ríflega 120 skátar alls staðar að af landinu sóttu þingið sem áður hafði verið frestað um þrjár vikur vegna veðurs. Þingfulltrúar Klakks voru ellefu talsins. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, skátahöfðingi, setti þingið og ávarpaði þingheim.
Í ávarpi sínu lagði Harpa áherslu á að skátastarf sé einkar viðeigandi og mikilvægt fyrir ungmenni í tækniveröld nútímans og þá aðför sem æskulýðsfélög finna fyrir þar sem verið er að strika þau út úr skipuritum stjórnvalda sem virðast í auknum mæli einblína eingöngu á íþróttir. Skátahreyfingin þarf að standa saman, vera sýnileg og segja frá gildum sínum. Þá hvatti Harpa þingheim til að taka virkan þátt í dagskrá þingsins og kynnast svæðinu en Landsmót skáta verður haldið á Hömrum í sumar. Ávörp fluttu einnig Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Akureyrarbæjar, Jóhann Malmquist, félagsforingi Klakks og Guðni Gíslason, landsgildismeistari.
Af vef Bandalags Íslenskra skáta
Þingið gekk vel fyrir sig, hefðbundnum þingstörfum var lokið á hádegi á laugardeginum og að hádegisverði loknum bauðst gestum að taka þátt í smiðjum þar sem málefni hreyfingarinnar voru reifuð. Hátíðarkvöldverður á laugardagskvöldinu var vel sóttur og sameinuðust gestir í söng í svokölluðu skátalagabingói sem Landsmótsstjóri, Ingibjörg Guðmundsdóttir, stýrði af krafti.
Sunnudagurinn var tekinn snemma á Hömrum, útilífsmiðstöð skáta, þar sem þinggestum var boðið til morgunverðar áður en haldið var í dagskrá fram að hádegi. Gestir gengu um svæðið með leiðsögn og fengu að skoða aðstæður fyrir Landsmót skáta sem verður haldið að Hömrum í sumar. Að lokum buðu Hamrar upp á grill í hádeginu fyrir heimför með aðstoð St. Georgsgildsins Kvists á Akureyri sem einnig framreiddi morgunverðinn.
Klakkur þakkar gestum fyrir komuna og BÍS fyrir frábært skipulag á þinginu.

