Skátafélagið Klakkur
  • Heim
  • Skátastarfið
    • Lög Skátafélagsins
  • Skátasveitir
  • Aðstaða
  • Fréttir
  • Skráning
  • Staðsetning
14th June 2026

Félagsútilega og fleiri fréttir

Félagsútilega og fleiri fréttir
14th June 2026

Veðrið var með skátum í liði um helgina þegar félagsútilega Klakks var haldin í blíðskaparveðri á Hömrum. Drekaskátar og eldri sveitir, alls á fimmta tug skáta, settu upp tjaldbúð á flöt 16 við Vilhelmínulund á föstudaginn, sinntu tjaldbúðavinnu og sötruðu kvöldkakó áður en skriðið var í svefnpokana.

Morgunsárið (sem hófst reyndar missnemma hjá skátum) hófst formlega með FMFM á laugardagsmorgninum, tjaldbúðarvinnu var fram haldið og svo tekin tjaldbúðarskoðun. Við tók póstaleikur þar sem blandað var í hópa milli aldursbila og boðið upp á klifur og súrringar.

Eftir staðgóðan hádegismat fjölgaði í tjaldbúðinni þegar fjölskylduskátar mættu á svæðið og komu sér fyrir á flöt 15. Sólarlandastemning var við völd þegar öll fengu að fara vatnasafarí og var buslað fram eftir degi. Grillaðir hamborgarar runnu ljúft niður eftir langan dag áður en undirbúningur hófst fyrir kvöldvöku.

Vaskir skátar, Birkir, Hörður og Rökkvi, tóku að sér undirspil með söng og að vanda voru skemmtiatriði og leikir. Mikið var hlegið og sungið dátt, enda rétt tæplega 100 skátar auk forráðamanna sem komu saman á kvöldvökunni.

Á sunnudagsmorgni var róleg stemning, eftir hefðbundin morgunverk gátu skátar valið um að kveikja eld eða taka niður súrringar og svo var farið hægt og rólega í frágang. Útilegu var slitið eftir hádegishressingu og voru það þreyttir og sælir skátar á öllum aldri sem héldu heim á leið.

Fjölskylduskátar

Á vordögum var farið af stað með fjölskylduskátasveit hjá Klakki þar sem hressum krökkum, 4 ára og eldri, bauðst að taka þátt í skátadagskrá í fylgd með fullorðnum. Alls skráðu 36 sig til leiks, fengu einkenni fjölskylduskáta og tóku þátt í póstaleikjum á Hömrum, náttúrubingói, gönguferð upp í Gamla og Fálkafell, fengu kynningu á skátasöngvum ofl. Verkefnið hefur gengið framar vonum og gleður það félagið að geta boðið upp á öflugt skátastarf fyrir unga krakka.

Fjölgun í félaginu

Markvisst hefur verið unnið að því að fjölga skátum í Klakki á öllum aldursbilum og hefur það gengið sérstaklega vel hjá Dreka- og Fálkasveit, auk þess sem Fjölskylduskátar bættust við starfsemi félagsins á vordögum. Grunnurinn að þessari vegferð var lagður fyrir all-löngu síðan og gengur vel, ekki síst vegna þess hve öflug rekkaskátasveit starfar innan félagsins sem hefur sinnt aðstoðarforingjastörfum af alúð. Þá var tekin ákvörðun um að ráða starfsmann sl. haust sem hefur styrkt starf allra sveita og félagsins í heild. Með samhentu átaki hefur fjöldi skáta því nánast tvöfaldast á sl. tveimur árum og óhætt að segja að mikil gleði sé með þann árangur. Skátar úr Klakki fjölmenna því sannarlega á Landsmót í sumar sem haldið verður að Hömrum í júlí.


Previous articleSkátaþing á Akureyri

Skátafélagið Klakkur

Nýlegar fréttir

Félagsútilega og fleiri fréttir14th June 2026
Skátaþing á Akureyri14th April 2026
Fjölskylduskátar14th April 2026
Átta skátar úr Klakki tóku við forsetamerkinu2nd November 2025
Leiðalýsing 202529th October 2025
Starfsmaður Klakks – fullt starf29th June 2025
Ný stjórn tekin við6th March 2025
Leiðalýsing25th October 2023
Starfsmaður skátafélagsins4th September 2023
Nýtt skátaár er að hefjast!20th August 2023

Skátafélagið Klakkur

Skátafélagið Klakkur var stofnað árið 1987 og varð til við sameiningu skáta- og kvenskátafélaganna á Akureyri. Skátastarf hafði fram að því verið kynjaskipt, en upphaf skátastarfs á Akureyri má rekja til ársins 1917. Fyrsta kvenskátasveitin var stofnuð 1923.

Hafðu samband

Skátafélagið Klakkur
Þórunnarstræti 99
600 Akureyri
899-1066
klakkur@klakkur.is

Nýlegar fréttir

Félagsútilega og fleiri fréttir14th June 2026
Skátaþing á Akureyri14th April 2026
Fjölskylduskátar14th April 2026
© Skátafélagið Klakkur