Nú er komið að hinum árlega jólaratleik Klakks, en að þessu sinni verður hann haldinn næstkomandi sunnudag, þann 15. desember, klukkan 14:00 í Hyrnu. Gerum ráð fyrir því að gamanið verði búið kl 16:00.
Eftir ratleikinn verður boðið upp á kakó og eitthvað til að dýfa í kakóið.
Allir eru velkomnir, og við hvetjum foreldra til að mæta með yngri skrátunum.
Mætið klædd eftir veðri þar sem að ratleikurinn fer fram utandyra!
Jólaratleikur Klakks – 15/12/2019